Ég er að vefa vörður og ég mun sýna þær næsta vor. Ég hef farið um að skoðað vörður, ljósmyndað, látíð þær leiða mig áfram og borðað nesti hjá þeim. Stundum hef ég haft annan félagsskap en vörðu má þar nefna ýmsar vinkonur sem hafa komið með mér í leiðangra (án þess að vita að í undirbúningi væri myndlistarverk og sýning) fuglar eða hrúturinn góði sem ég hitti í gær.
Ég ljósmynda vörðurnar, ég skissa þær upp með blýanti, tússi, kolum eða vatnslitum. Síðan vef ég þær að lokum. þegar mest lætur er ég að vefa myndvef með 10-20 endum og það þarf aldeilis að einbeita sér til að ruglast ekki í ríminu. En þetta starf mitt er gefandi á allan hátt nema fjárhagslega ;) En ég kvarta ekki því ég hef þak yfir höfuðið og nóg að snæða og er í tveimur launavinnum með þessu. Það vita ekki allir, það vita sumir kannski örfáir að ég er heltekin af vörðum, tilgang varða, öryggishlutverk þeirra, fagurfræði varða, menningarhlutverk þeirra hjá þjóð og jafnvel leita ég að draugum á þeim slóðum sem menn hafa villst af varðaðri leið og orðið úti, eins og á Mosfellsheiði. Túristavörturnar pirra mig, ég sé þær eins og aðrir sjá veggjakrot. Sumum finnst túristavörturnar allt í lagi, en mér finnst það ekki.
Ég þrammaði um Mosfellsheiði í morgun og heimsótti nokkrar vörður. M.a. þessa stóru sem ég tók mynd af með sjálfri mér. Fé var á beit hist og her og áður en smalarnir komu til að reka féð heim á Heiðarbæ þá rakst ég á þennan vinalega hrút sem að kom hlaupandi til mín þegar ég beygði mig niður og kallaði á hann. Við áttum gott samtal og svo fór hvort í sína áttina. Some know that I am obsessed with cairns. The meaning of the cairns, the safety of cairns, the aestheticism of cairns, cultural meaning and I even look for ghosts in areas where men have lost their way marked with cairns and died at the hands of natural forces, like on Mosfellsheiði heath. I dislike the the cairn-like things that the tourists keep dripping around like the worst graffiti ever. Graffiti is fine tourist cairns, or warts as we call them NOT. I hiked around Mosfellheiði this morning and visited some cairns and a friendly ram came along for a chat. |
AuthorAnna María Lind, MA Textile Art Winchester School of Art. Archives
October 2024
|